40 ára tilraun sem mistókst
eftir Georg Eið Arnarson
gea_opf
Greinarhöfundur á miðunum. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar Pétur

Nýtt kvótaár hófst í dag og mér varð hugsað til þess, að þegar kvótakerfið var sett á 1984 þá var ég aðeins 19 ára gamall og ekki byrjaður í útgerð og kannski má að mörgu leyti segja að stærsta vandamálið við að breyta þessu fáránlega kvótakerfi sé einmitt unga fólkið í dag sem einfaldlega skilur þetta ekki. En já, kvótakerfið var sett á 1984 og þá m.a. vegna loforðs fiskifræðinga um, að ef farið væri eftir þeim í 3 ár, þá yrðum við að þeim tíma liðnum farin að veiða 400-500 þúsund tonn af þorski á hverju ári, en eins og svo sem allir vita þá hefur þetta aldrei tekist, en til þess að viðhalda þessu kvótakerfi var tekin sú ákvörðun árið 1990 að leyfa frjálst framsal á aflaheimildum og svolítið sérstakt að hugsa til þess, að á þeim tíma var aðeins 1 stjórnmálaflokkur sem greiddi atkvæði gegn þessari tillögu á þingi og það var Sjálfstæðisflokkurinn, en margt hefur breyst síðan þá. 

Eftir 1999 hinsvegar, hefur rignt inn allskonar tegundum í kvóta til þess eins að hagsmunaaðilar gæti notað þær í tilfærslur. 

Það er talið að fjárhagslegt tjón þjóðarinnar sé u.þ.b. 100 milljarðar á ári vegna kvótakerfisins, en það er fyrir utan það tjón sem orðið hefur vegna fáránlegra vinnubragða Hafró, sem að meira að segja sumir í stórútgerðinni eru farnir að tala um og má þar t.d. nefna síðustu 2 loðnuvertíðar, en þar úthlutaði Hafró loðnukvóta sem aldrei veiddist nema að hluta til og margir loðnusjómenn tala um að það hafi í raun og veru ekki verið til í hafinu, enda hefur ekki verið úthlutað loðnu síðan þá með tilheyrandi tjóni fyrir land og þjóð og svolítið sérstakt að Hafró þurfi ekki að bera neina ábyrgð af sínum útreikningum, en um leið líka svolítið mikilvægt að hafa í huga að það er að sjálfsögðu ráðherra sem tekur endanlega ákvörðun um hvað megi veiða og þó að ráðherrar undanfarinna ríkisstjórna hafi því miður vanið sig á að fela sig á bak við ráðgjöf Hafró, þá bera þeir samt ábyrgðina. 

En hvernig var þetta fyrir daga kvótakerfisins?

Í dag heitir sjávarútvegsráðherra matvælaráðherra og fer bæði með málefni sjávarútvegs og landbúnaðar, en fyrir daga kvótakerfisins vorum við með sérstakan sjávarútvegsráðherra sem ferðaðist um landið, ræddi við sjómenn og skipstjóra í hverju landshorni og tók síðan ákvörðun í samráði við þá sem unnu við að veiða fiskinn og þekktu fiskimiðin. Árangurinn var líka sá, að þá veiddum við helmingi meira heldur en í dag. Vissulega á mun fleiri skipum, en þessi hagræðing í sjávarútvegi hefur svo sannarlega kostað mörg sjávarþorpin lífið.

Ég horfði á ágætan þátt um sjávarútvegsmálin um daginn, þar sem í viðtali voru nokkrir skipstjórar sem starfað höfðu um og yfir 50 ár á sjó og höfðu frá ýmsu að segja, en allir voru þeir þó sammála um eitt, að í dag er gríðarleg uppsveifla í þorskstofninum á Íslandi en við erum ekki að nýta okkur það og enginn þeirra skilur vinnubrögð Hafró, ráðgjöf Hafró eða þetta svokallaða togararall Hafró sem engu skilar, eins og marg hefur verið sýnt fram á.

Reyndar svolítið sérstakt líka að lesa ályktun SFS um makrílrannsóknir Hafró, en samkvæmt mælingum Hafró hefur makrílstofninn minnkað um liðlega helming í íslenskri lögsögu, en samkvæmt ályktun SFS er ekkert að marka það vegna þess að þetta sé stofn sem sé flökkustofn, en spurningin er, eru ekki allir fiskistofnar meira og minna flökkustofnar sem færa sig til eftir æti, t.d. tala sjómenn á vestfjörðum mikið um það þegar grænlandsþorskurinn gengur inn á miðin og svo aftur til baka, en það hefur hins vegar aldrei verið mælt af Hafró og þeir í raun og veru hafnað því að þetta sé til. Pínu sérstakt.

Óska öllum sjómönnum og útgerðarmönnum gleðilegs nýs fiskveiðiárs.

 

Georg Eiður Arnarson

Nýjustu fréttir

Ekki einhugur um milljóna framlag til ÍBV
Loðnuvertíðin hafin í Eyjum
Heiðurshjónin Hjalti og Vera Björk Eyjafólk ársins 2025
Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.