8% sjálf­stæðismanna strikuðu út í Suður­kjör­dæmi
Tæp­lega átta pró­sent kjós­enda Sjálf­stæðis­flokks­ins í Suður­kjör­dæmi strikuðu yfir nafn eða nöfn á lista flokks­ins, að því er upp­lýs­ing­ar frá yfir­kjör­stjórn í kjör­dæm­inu herma.
�?að er fjarri því að vera nógu mikið til að upp­röðun á list­an­um breyt­ist en til þess að fella mann í fyrsta sæti niður um sæti þurfa 25% kjós­enda list­ans að strika út nafn hans. Hlut­fallið er 20% þegar kem­ur að öðru sæt­inu en 14,3% þegar kem­ur að því þriðja.
Ekki fást upp­lýs­ing­ar um hvaða fram­bjóðandi Sjálf­stæðis­flokks­ins fékk flest­ar út­strik­an­ir. Sjálf­stæðis­flokk­ur­inn fékk þrjá þing­menn kjörna í kjör­dæm­inu; Pál Magnús­son, Ásmund Friðriks­son og Vil­hjálm Árna­son. Flokk­ur­inn fékk ríf­lega sjö þúsund at­kvæði í kjör­dæm­inu.
Um fimm­tíu kjós­end­ur Sam­fylk­ing­ar­inn­ar strikuðu yfir nafn eða nöfn á lista flokks­ins í Suður­kjör­dæmi. �?að er inn­an við 2%.
Aðrar yfir­kjör­stjórn­ir hafa ekki veitt ná­kvæm­ar upp­lýs­ing­ar um yf­ir­strik­an­ir. Í flest­um kjör­dæm­um fást þau svör að yf­ir­strik­an­ir hafi verið mjög fáar og ekki til þess falln­ar að breyta röð fram­bjóðenda. Í ein­hverj­um kjör­dæm­um er taln­ing­um á út­strik­un­um ekki lokið. �?á hef­ur yfir­kjör­stjórn í Norðvest­ur­kjör­dæmi vísað á lands­kjör­stjórn.

Nýjustu fréttir

Baldur verður áfram í Eyjum
Eyjakonur í undanúrslit eftir framlengdan leik gegn FH
Hátíðarhöld 17. júní færð inn í Íþróttamiðstöðina
Sjómannsfjölskyldan mín
Topplið FH mætir ÍBV í bikarslag á Hásteinsvelli
Vertíðin 2026
Skoðar Vestmannaeyjar fyrir mögulega fóðurverksmiðju
Herjólfur III bíður enn eftir haffærisskírteini
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.