900 krónur urðu að 45 milljónum!
Miðinn góði skilaði veglegum vinning.

Það var sannkallað heppniskvöld hjá einum spilara síðastliðið laugardagskvöld þegar þrefaldur Lottópottur skilaði honum ríflega 45 milljóna króna fyrsta vinningi. Vinningsmiðinn, sem kostaði aðeins 900 krónur, var keyptur í Happahúsinu í Kringlunni, að því er segir í tilkynningu frá Íslenskri Getspá.

Þegar hann sá síðastliðinn sunnudag að fyrsti vinningur hafði gengið út, ákvað hann að renna yfir miðann sinn og þá blasti sannleikurinn við.

„Ég ætlaði alls ekki að trúa þessu,“ segir vinningshafinn og hlær. Fyrsta sem hann gerði var að segja konunni sinni gleðifréttirnar, en hún var ekki síður vantrúuð: „Við horfðum bæði á hvort annað og hugsuðum að þetta væri nú örugglega rangt.“

Hann viðurkennir að svefninn um nóttina hafi verið nánast enginn. „Ég er eiginlega enn að reyna að átta mig, þetta er ólýsanleg tilfinning,“ segir hann og bætir við að gleðin hafi verið yfirþyrmandi.

Hjónin eru þó ekki alveg sammála um hvað eigi að gera fyrst. Konuna dreymir um nýtt parket en hann horfir frekar til þess að slaka aðeins á og njóta þess að vera orðinn nýbakaður lottómilljónamæringur.

Starfsfólk Íslenskrar getspár óskar vinningshafanum innilega til hamingju og þakkar um leið veittan stuðning sem skiptir gríðarlega miklu máli fyrir fatlað fólk, sem og íþrótta- og ungmennafélög um land allt sem njóta góðs af sölu Lottó.

Nýjustu fréttir

Laskað lið ÍBV tapaði gegn Val
Athugasemd
Dísa leiðir Eyjalistann
Kvenfélagið Líkn færði HSU veglega gjöf
Loðnan tengir saman Vestmannaeyjar og Japan
Listir og menning í Framhaldsskóla Vestmannaeyja
Lestur ársreiknings bæjarins gefur allt aðra mynd
Ísólfur Gylfi – 42 ár frá Helliseyjarslysinu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.