Herjólfur til Landeyjahafnar seinni partinn

Herjólfur stefnir á að sigla til Landeyjahafnar seinnipartinn í dag eina ferð, föstudaginn 20. febrúar. Áætluð brottför frá Vestmannaeyjum er klukkan 17:00 og brottför frá Landeyjahöfn klukkan 20:15. Farþegar eru beðnir um að fylgjast vel með tilkynningum, þar sem breytingar á áætlun geta orðið með stuttum fyrirvara. Ef gera þarf breytingar verður það tilkynnt um […]

Sigurjón og Auðunn jafnir efstir á Skákþingi Vestmannaeyja 2026

Skákþing Vestmannaeyja 2026 lauk 19. febrúar þegar síðasta umferð mótsins fór fram í skákheimili Taflfélags Vestmannaeyja (TV) við Heiðarveg. Alls tóku 10 keppendur þátt og voru tefldar níu umferðir. Umhugsunartími var 60 mínútur á skák auk 30 sekúndna viðbótar á hvern leik. Teflandi skákstjóri var Sæmundur Einarsson. Sigurjón Þorkelsson, núverandi skákmeistari Vestmannaeyja, og Auðunn Haraldsson, […]

Emil Gautason í lokahóp u-16

Lúðvík Gunnarsson, þjálfari u-16 ára landsliðsins í fótbolta, hefur valið Emil Gautason, leikmann ÍBV, í lokahóp til þátttöku í UEFA Development mótinu.  Mótið fram fer í Færeyjum dagana 27. febrúar – 6. mars næstkomandi. Liðið æfir á Íslandi fimmtudaginn 26. febrúar áður en haldið er til Færeyja þann 27. Febrúar. Emil hefur leikið upp alla […]

900 krónur urðu að 45 milljónum!

Það var sannkallað heppniskvöld hjá einum spilara síðastliðið laugardagskvöld þegar þrefaldur Lottópottur skilaði honum ríflega 45 milljóna króna fyrsta vinningi. Vinningsmiðinn, sem kostaði aðeins 900 krónur, var keyptur í Happahúsinu í Kringlunni, að því er segir í tilkynningu frá Íslenskri Getspá. Þegar hann sá síðastliðinn sunnudag að fyrsti vinningur hafði gengið út, ákvað hann að […]

Vara við snjóhengjum og grýlukertum

Slökkvilið Vestmannaeyja varar við snjóhengjum og grýlukertum. Þetta segir í tilkynningu á vef Vestmannaeyjabæjar. Þar segir jafnframt að mjög víða í bænum séu stærðarinnar snjóhengjur og grýlukerti farin að hanga fram af þakköntum með tilheyrandi slysahættu fyrir gangandi vegfarendur. „Við hvetjum húseigendur, fyrirtæki og stofnanir til að huga að þessu og fjarlægja sem allra fyrst […]

Staðan í Viðlagafjöru þremur árum eftir fyrstu skóflustungu

default

Í vikunni voru liðin þrjú ár frá því fyrsta skóflustungan var tekin að laxeldi í Viðlagafjöru, eins og rakið var í tilkynningu frá Laxey um tímamótin 17. febrúar sl.. Uppbyggingin hefur verið umfangsmikil á þessum tíma og verkefnið tekið miklum breytingum með fyrsta áfanga í fullum rekstri og öðrum áfanga vel á veg komnum. Hér […]

S!ll! sendir frá sér nýtt lag og heldur tónleika í kvöld

Screenshot

Sigtryggur Örn Ólafsson, sem notar listamannsnafnið S!ll!, er 15 ára tónlistarmaður og er að stíga sín fyrstu skref í tónlistarheiminum. Hann flutti til Vestmannaeyja í byrjun síðasta árs ásamt fjölskyldunni. Sjálfur hafði hann búið í Kópavogi en er vel tengdur Eyjunum: „Já, pabbi er alinn upp í Vestmannaeyjum, svo ég hef oft komið og verið […]

Óska eftir framlengingu á flugi vegna stöðunnar í Landeyjahöfn

Flug Ernir Farthegar Jan 2024 Tms Lagf

Samgöngumál voru til umræðu á fundi bæjarráðs Vestmannaeyja í vikunni, þar sem meðal annars var farið yfir umsögn bæjarins um samgönguáætlun og stöðu flug- og siglingasamgangna við Eyjar. Umsögn Vestmannaeyjabæjar um samgönguáætlun var send í umsagnargátt Alþingis þann 10. febrúar síðastliðinn. Bæjarstjóri fylgdi umsögninni eftir á fundi umhverfis- og samgöngunefndar 12. febrúar þar sem ítrekaðar […]

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.