Vara við snjóhengjum og grýlukertum
Snjóhengjurnar eru víða um bæinn. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Slökkvilið Vestmannaeyja varar við snjóhengjum og grýlukertum. Þetta segir í tilkynningu á vef Vestmannaeyjabæjar. Þar segir jafnframt að mjög víða í bænum séu stærðarinnar snjóhengjur og grýlukerti farin að hanga fram af þakköntum með tilheyrandi slysahættu fyrir gangandi vegfarendur.

„Við hvetjum húseigendur, fyrirtæki og stofnanir til að huga að þessu og fjarlægja sem allra fyrst eða gera aðrar ráðstafanir svo ekki hljótist slys af þegar þetta fellur niður,” segir í tilkynningunni.

Nýjustu fréttir

Einstæð móðir vann rúmar 45 milljónir í Lottó
Bókakynningu Steinunnar frestað til sunnudags
Kæru vegna útboðs heilsuræktar hafnað – skilmálarnir ekki metnir efnislega
Loðnan ofarlega á baugi hjá kaupendum í Asíu
Arnar tilkynnti lokahóp Íslands – Þrjár Eyjakonur á leið á EM
Jarðvinna og húsbyggingar í Eyjum
Tíundubekkingar standa vaktina í skammdeginu
Nýtt fyrirkomulag á hrekkjavökunni
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.