Emil Gautason í lokahóp u-16
Emil Gautason.

Lúðvík Gunnarsson, þjálfari u-16 ára landsliðsins í fótbolta, hefur valið Emil Gautason, leikmann ÍBV, í lokahóp til þátttöku í UEFA Development mótinu. 

Mótið fram fer í Færeyjum dagana 27. febrúar – 6. mars næstkomandi. Liðið æfir á Íslandi fimmtudaginn 26. febrúar áður en haldið er til Færeyja þann 27. Febrúar.

Emil hefur leikið upp alla yngri flokka ÍBV og þreytti frumraun sína með meistaraflokki ÍBV, seinni hluta síðasta tímabils, í 4-1 sigri gegn Val í Bestu deildinni. Hann spilaði með KFS fyrri hluta sumarsins ásamt því að leika með 3. og 2. flokki ÍBV. Þá fór hann á reynslu til sænsku meistarana í Mjällby síðasta haust, þar sem hann æfði með unglingaliðinu. 

Nýjustu fréttir

Aglow-konur hittast í kvöld
Fótboltasumarið gert upp hjá yngri flokkum ÍBV
Foreldrafundur um Kveikjum neistann á morgun
Varamótorar Herjólfs inni í fjárlagafrumvarpinu
Malbikun hafin – Sólhlíð og Kirkjuvegur næst á dagskrá
Arnar Pétursson valdi 18 leikmenn fyrir vináttuleiki gegn Póllandi
Yfirtaka á úrgangsþjónustu kallar á verulega fjárfestingu
VestExpo27 verður haldin í Goslokavikunni
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.