Fylltu sig á rúmum 20 tímum

Vestmannaeyjaskipin Bergur VE og Vestmannaey VE hafa fiskað afar vel að undanförnu. Þau lönduðu bæði fullfermi í Eyjum sl. sunnudag, héldu til veiða strax að löndun lokinni og voru á ný komin með fullfermi til löndunar á mánudagskvöld. Bæði skipin fylltu sig því á innan við sólarhring. Heimasíða Síldarvinnslunnar ræddi við Arnar Richardsson, rekstrarstjóra Bergs – Hugins og Bergs og spurði fyrst hvar skipin hefðu verið að veiðum. “Þau voru bæði að veiðum á Víkinni og túrinn hjá þeim gekk eins og í sögu. Þau fylltu sig á rúmum 20 tímum. Þetta kallast víst mok. Aflinn var mest ýsa og þorskur, hinn fallegasti fiskur. Það hefur gengið vel hjá skipunum að undanförnu en frá því um miðjan febrúar hafa þau farið tvo túra á viku. Auðvitað væri freistandi að fara fleiri veiðiferðir en það þarf að vera til kvóti út sumarið. Ávallt er lögð áhersla á að blanda aflann og það þarf oft að gefa sér tíma til að ná í þær tegundir sem mest þarf að hafa fyrir. Auðvitað eru allir ánægðir með gang veiðanna enda væri annað skrítið. Bergur mun halda á ný til veiða á föstudag og Vestmannaey á laugardag og verður það síðasti túr fyrir páska,” segir Arnar.

Nýjustu fréttir

Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Dýptarmælingar fyrirhugaðar í Landeyjahöfn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.