„Einvígið leggst ótrúlega vel í mig. Það er alveg yndislegt að vera kominn aftur í úrslit og líka fyrir okkur að sýna að við erum stöðugt í baráttu um titla.
Við erum alltaf þarna uppi og búum okkur undir það fyrir hvert tímabil að vera klárir á þessum tíma árs að spila handbolta,“ segir Kári Kristján Kristjánsson, leikmaður ÍBV í handknattleik, í samtali við Morgunblaðið.
ÍBV mætir Haukum í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn og fer fyrsti leikurinn fram í Vestmannaeyjum í dag og hefst klukkan 15.30.
Í undanúrslitunum vann ÍBV einvígi sitt við FH, 3:0, en Haukar unnu einvígi sitt við Aftureldingu, 3:2.
„Haukar eru náttúrlega að koma úr stórri seríu á móti Aftureldingu og að sjálfsögðu erum við búnir að vera að fylgjast með þeim í gegnum þetta. Það hafa allir horft á þetta og við erum búnir að rýna í þeirra leik.
En fyrst og fremst mun öll vinnan hjá okkur fara inn á við. Við þurfum að laga eitthvað hjá okkur, erum alltaf að vinna í því og erum mun minna að spá í Hauka,“ sagði Kári Kristján.
Af mbl.is
Leikið er í Íþróttamiðstöðinni og hefst leikurinn kl. 13.00.
Kári hefur sjaldan verið betri en í vetur.
Mynd Sigfús Gunnar.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.