Verkföll á bæjarskrifstofum og stofnunum Vestmannaeyjabæjar

Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum hefur Starfsmannafélag Vestmannaeyja-Stavey (eitt af aðildarfélögum BSRB) boðað til verkfalls hjá félagsmönnum þess í nokkrum stofnunum Vestmannaeyjabæjar.

Verkfallsboðunin á við um félagsmenn á bæjarskrifstofum Vestmannaeyja í Ráðhúsinu, leikskólanum Kirkjugerði, Þjónustumiðstöð, Íþróttamiðstöðinni og hjá Vestmannaeyjahöfn.

Vinnustöðvanir hófust í dag mánudaginn 5. júní og standa mislengi yfir eftir stofnunum..

Í tilviki Leikskólans Kirkjugerðis eru vinnustöðvanir boðaðar til 5. júlí nk. Sama á við um félagsfólk á bæjarskrifstofum í Ráðhúsinu.
Ótímabundin vinnustöðvun félagsmanna hefur verið boðuð í Íþróttamiðstöðinni.
Í tilviki Þjónustumiðstöðvarinnar eru vinnustöðvanir boðaðar til 17. júní nk. náist ekki samningar á tímabilinu
Hjá Vestmannaeyjahöfn er um að ræða einn dag á þessu tímabili, 8. júní nk.
Þetta kallar á skerta starfsemi umræddra stofnana, en verkföllin hafa ekki áhrif á ferðir Herjólfs milli lands og Eyja.

Í tilviki bæjarskrifstofanna verður afgreiðslan í Ráðhúsinu lokuð á meðan verkfallið stendur og önnur þjónusta skert.

Hægt verður að hringja í síma 488-2000, en búast má við að verkfallið hafi áhrif á símsvörun.

Hægt verður að hafa samband með tölvupósti á netfangið postur@vestmannaeyjar.is og eins með tölvupósti til einstakra starfsmanna. Upplýsingar um netföng starfsfólks er að finna á vefsíðu Vestmannaeyjabæjar (sjá: Starfsfólk Vestmannaeyjabæjar | Starfsfólk | Vestmannaeyjarbær).

Leikskólastjóri Kirkjugerðis mun senda foreldrum leikskólabarna á Kirkjugerði tilkynningu um þjónustu leikskólans meðan á verkfalli stendur.

Jóhann Jónsson, forstöðumaður Þjónustumiðstöðvar, mun svara fyrir um þjónustustig þar í verkfalli. Netfang Jóhanns er joi@vestmannaeyjar.is.

Hákon Helgi Bjarnason, forstöðumaður Íþróttamiðstöðvar (netfang: hakon@vestmannaeyjar.is) munu svara fyrir um þjónustu Íþróttamiðstöðvarinnar meðan á verkfallsaðgerðum stendur.

Angantýr Einarsson, framkvæmdastjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs (netfang: angatyr@vestmannaeyjar.is) mun svara fyrir um starfsemi bæjarskrifstofanna í Ráðhúsinu meðan á verkfalli stendur.

Nýjustu fréttir

Vikan í Eyjum: Ólögmætar uppsagnir, óveður og góðgerð í fullri Höll
Bleik messa í Landakirkju
Seinni ferðir Herjólfs falla niður vegna veðurs og sjólags
„Vestmannaeyjar eru hluti af Suðurkjördæmi alla daga ársins“
Locomotive Breath flutt til heiðurs Jóa Listó
Áhyggjur af fjölda barna sem bíða eftir greiningu
Metmæting á kótilettukvöldi í Höllinni
Aron Lucas Vokes með slitið krossband
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.