Ánægja með árangurinn - 83% barna í Grunnskóla Vestmannaeyja teljast læs
Mynd: Kveikjum neistann

Læs – Nýtt lestrarpróf við lok 2. bekkjar grunnskóla. Áskoranir og árangur, tækifæri til breytinga

Nýtt lestrarpróf LÆS, sem metur hvort barn telst læst við lok 2. bekkjar grunnskóla hefur litið dagsins ljós. Að vera læs merkir að barn getur lesið aldurssvarandi texta án vandkvæða, fumlaust og af nákvæmni og skilið innihald. Prófið er þróað af þremur læsisfræðingum og
sérfræðingi á sviði náms og færniþróunar. Það kom vel út úr gildi- og áreiðanleikamati og prófun á yfir 500 nemendum víðs vegar um landið bendir til þess að prófið sé marktækt.

„Við í Rannsóknarsetri um menntun og hugarfar við HÍ sem berum ábyrgð á gerð prófsins erum afskaplega spennt að kynna þessa nýjung fyrir kennurum, því markmiðið er að færa þeim einfalt próf í hendur sem mælir bæði lestur og lesskilning,“ segir Hermundur Sigmundsson, prófessor við NTNU og HÍ. Eitt af markmiðum verkefnis okkar Kveikjum neistann er að við lok 2. bekkjar teljist að lágmarki 80% barnanna læs. Það er ekki til próf sem mælir það svo við réðumst í þróun þess.
„Prófið metur stöðu barns í lestri eftir fyrstu tvö árin í skóla og gefur kennurum mikilvægar upplýsingar til að vinna eftir,“ segir Helga Sigrún Þórsdóttir kennsluráðgjafi á Skólaskrifstofu Vestmannaeyja og læsisfræðingur.
Stjórnendur Grunnskóla Vestmannaeyja, Anna Rós Hallgrímsdóttir, Óskar Jósúason og Einar Gunnarsson eru mjög ánægð með árangurinn eftir fyrstu tvö árin í rannsóknar og þróunarverkefninu, Kveikjum neistann og segja markmiðinu í lestri náð. Vestmannaeyjabær, Mennta- og menningarmálaráðuneyti, Háskóli Íslands og Samtök atvinnulífsins styðja við verkefnið.

Árangur – markviss kennsla, stöðumat og eftirfylgni

Til að kennsla skili árangri þarf kennari að vita stöðu barns svo honum sé unnt að byggja ofan á þekkingu sem fyrir er og auka á færnina. Hann þarf að skipuleggja markvissa kennslu og vera með stöðuga eftirfylgni og þá er mikilvægt að hann hafi undir höndum einföld mælitæki.

Niðurstöður í Vestmannaeyjum og á landsvísu

Prófið var lagt fyrir 498 nemendur úr 20 skólum víðs vegar um landið. Niðurstöður eru órekjanlegar en aðeins var gefinn upp fjöldi stúlkna og drengja sem tóku prófið og hve margir töldust af þeim læsir samkvæmt viðmiðum prófsins. Rannsakendur sem sjá um tölfræðina
hafa engar rekjanlegar upplýsingar hvorki til skóla né barna.
83% barna í Grunnskóla Vestmannaeyja teljast læs samkvæmt nýju mælitæki en 52% barna úr þátttökuskólum víðsvegar um landið

Áskoranir

Niðurstöður fyrstu mælinga með nýju prófi gefa til kynna að það eru víða áskoranir. Það höfum við áður séð í öðrum mælingum.
Eitt af undirstöðuatriðum í kennslu er að gefa barni réttar áskoranir, verkefnin mega hvorki vera of þung né of létt. Barn þarf að komast í flæði og upplifa tilfinninguna, ég get!

Markmiðið með nýju prófi er að færa okkur niðurstöður í hendur til að vinna markvisst að því að efla læsi um allt land. Í Vestmannaeyjum hefur tekist vel til með því að byggja brú milli vísinda og aðgerða.

Nýjustu fréttir

Styrkir veittir til fjölbreyttra verkefna
Neyðarkall úr Eyjum
Sigmundur Davíð með opinn fund
Hæsti styrkurinn til Eyja
Dýptarmæling í dag
Eyjalistinn í sókn: Heimasíða og stefnuskrá líta dagsins ljós!
Vinnandi hendur frá hafi til hátíðarborðs
Kristmundur Axel kemur fram á Þjóðhátíð

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.