�?essi ákvörðun ríkisstjórnarinnar er glæsilegt framtak sem mun sérstaklega koma sér vel fyrir íþróttafélög á landsbyggðinni sem mörg hver hafa verið að sligast undan ferðakostnaðinum.
Fyrir íþróttahreyfinguna í Vestmannaeyjum hlýtur þessi samþykkt að skipta gríðarlegu máli. Í Morgunblaðinu í morgun er haft eftir formanni ÍBV að árlegur ferðakostnaður íþróttahreyfingarinnar í Eyjum sé á bilinu 30 – 40 milljónir. �?að má vel gera sér í hugarlund það mikla sjálbopðaliðastarf sem inna þarf af hendi til að afla tekna, bara til að standa straum af ferðakostnaðinum. Með tilkomu sjóðsins á eiga fjárframlög sem íþróttafélögin þurfa að leggja í ferðakostnað að lækka sem gefur þeim þá aukið svigrúm til eflingar annarar starfsemi.
�?að er því full ástæða til að hrósa menntamálaráðherra og ríkisstjórninni fyrir að koma því í verk að gera ferðasjóðinn að veruleika. Svona á að afgreiða hlutina. Flott hjá þér �?orgerður Katrín.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst