Eygló opnar fyrir ljósleiðara í Áshamri, Bessahrauni, Goðahrauni og Búhamri

Í gær sendi Eygló fjarskiptafyrirtækjunum lista yfir þau hús í Áshamri, Bessahrauni, Búhamri og Goðahrauni sem eru nú tengd ljósleiðaraneti Eygló.

Um er að ræða þau hús sem að sátu eftir í Áshamri, Bessahrauni og Búhamri, síðast þegar opnað var fyrir tengingar og svo Goðahraun.

Íbúar eftirtalinna húsa í Áshamri og Bessahrauni geta nú haft samband við sína þjónustuaðila og kannað hvort að þeir séu ekki tilbúnir með ljósleiðaratengingu fyrir þá.
Áshamar 20, 24, 26, 28, 31, 32, 34, 36, 40, 42, 44, 46, 48, 50, 52, 54, 56, 58, 60
Áshamar 75, Blokk.

Bessahraun 6, 20, 26. Búhamar 13, 28, 68. Goðahraun 4, 6, 7, 8, 10, 12, 14, 16

Eygló ehf. mun reka ljósleiðarann sjálfann sem er grunnstoð kerfisins en fjarskiptafélögin koma með þann búnað sem til þarf.

Sala inn á kerfið er í höndum þeirra þjónustuveitna sem selja inn á kerfi Mílu og Tölvun ehf í Vestmannaeyjum. Íbúar ofangreindra húsa eru hvattir til að hafa samband við sína internetveitu og kanna hvort að veitan sé ekki klár í að selja þeim tengingar inn á ljósleiðarakerfi Eyglóar.

Rétt er að taka það fram að Eygló ehf. sinnir einungis þessum tveimur fjarskiptafélögum sem samið hafa við félagið. Öll notendaþjónusta og sala er í höndum fjarksiptafélaga á endursölumarkaði. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vestmannaeyjabæ.

Nýjustu fréttir

ÍBV B mætir Herði í Powerade bikarnum
Treyjudagurinn haldinn í fyrsta sinn
Skammt í farþegametið í komu skemmtiferðaskipa
Samfylkingin stærst en Sjálfstæðisflokkurinn sækir í sig veðrið
Stór ágústmánuður að baki hjá Herjólfi
Sænski sendiherrann genginn til liðs við Taflfélag Vestmannaeyja
Fyrsta Aglow-samvera haustsins í kvöld
Sjónarhorn flakkarans á nýja hrauninu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.