Rannsóknaskipið Árni Friðriksson lauk þátttöku í árlegum alþjóðlegum uppsjávarvistkerfisleiðangri í Norðurhöfum að sumarlagi þann 21. júlí. Í þessum 19 daga leiðangri Árna kringum landið voru teknar 43 togstöðvar og sigldar um 3250 sjómílur eða 6 þúsund km. Þá voru gerðar sjómælingar og teknir átuháfar á öllum yfirborðstogstöðvum. Þetta kemur fram í frétt á vef Hafrannsóknarstofnunnar.
Rannsökuð var útbreiðsla og þéttleiki makríls, síldar og kolmunna í íslenskri landhelgi að undanskildum suðaustur hluta hennar sem Færeyingar rannsökuðu.
Bráðbirgðaniðurstöður mælinga á Árna sýna að þéttleiki makríls í íslenskri lögsögu var álíka og síðasta sumar en útbreiðslusvæðið var minna, sjá mynd 1.
Makríll fannst aðallega á landgrunninu og landgrunnsbrúninni meðfram suðurströnd landsins og fáeinir fiskar fengust fyrir vestan landið. Líkt og undanfarin ár var norsk-íslenska vorgotssíld að finna á flestum togstöðvum fyrir norðan og austan landið og íslenska sumargotssíld á landgrunninu fyrir sunnan og vestan landið.
Kynþroska kolmunni mældist við landgrunnsbrúnina sunnan og vestan við landið í álíka þéttleika og síðasta sumar.
Bráðabirgðaniðurstöður sýna að hitastig í yfirborðslagi sjávar var álíka og sumarið 2022 fyrir sunnan og vestan landið en kaldara fyrir norðan.

Leiðangur Norðmanna stendur enn yfir á tveimur skipum. Gögn frá skipunum fimm sem taka þátt í leiðangrinum verða tekin saman og greind upp úr miðjum ágúst og niðurstöður kynntar undir lok ágúst.





















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Ekki liggja fyrir nýjar mælingar
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.