Án efa einn stærsti styrktarsamningur knattspyrnuliðs hér á landi

Samningurinn er án efa einn sá stærsti sem knattspyrnulið á Íslandi hefur gert og gerir ÍBV kleift að efla starfsemi sína umtalsvert á næstu misserum. Markmið liðsins er að efla starf knattspyrnudeildarinnar og að festa liðið í sessi sem eitt af bestu liðum í úrvalsdeild knattspyrnunnar.

Ferðakostnaður íþróttaliða af landsbyggðinni hefur reynst gríðarlega mikill og sífellt erfiðara er fyrir lið af landsbyggðinni að standa straum af þeim kostnaði. Mörg liða af landsbyggðinni standa því höllum fæti gagnvart liðum af höfuðborgarsvæðinu þegar kemur að rekstri félaganna. Styrktarfé er þessum íþróttaliðum afar mikilvægt og gerir þeim kleift að huga betur að innviðum íþróttafélagsins og beinu íþróttastarfi.

Toyota á Íslandi hefur um árabil haft þá stefnu að styðja við ýmiss konar íþróttastarf á landinu og með þessum styrk vill Eyjamaðurinn Magnús Kristinsson undirstrika þá stefnu en hann er mikill áhugamaður um knattspyrnu eins og vel er þekkt. Toyota á Íslandi fagnar þessum samningi og óskar þess að markmið ÍBV nái fram að ganga og hvetur um leið önnur fyrirtæki að styrkja mikilvægt starf íþróttaliða á landinu.

Fréttatilkynning

Nýjustu fréttir

Ófullnægjandi dýpi í Landeyjahöfn – uppfært
Ekki einhugur um milljóna framlag til ÍBV
Loðnuvertíðin hafin í Eyjum
Heiðurshjónin Hjalti og Vera Björk Eyjafólk ársins 2025
Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.