Töluvert af fiski innan um síldina
Ísfisktogararnir Vestmannaey VE og Bergur VE lönduðu báðir fullfermi í Vestmannaeyjum. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Ísfisktogarinn Vestmannaey VE landaði 82 tonnum í Vestmannaeyjum í fyrradag. Um 37 tonn af aflanum var ufsi en síðan var mest af þorski og ýsu.

Birgir Þór Sverrisson skipstjóri sagðist í samtali við vef Síldarvinnslunnar vera ánægður með túrinn. „Þetta gekk bara býsna vel. Við byrjuðum á Pétursey og fórum austur á Höfða og síðan var farið kantana til baka. Aflinn var misjafn en við fengum ágætis glennur inn á milli. Haldið var á ný til veiða strax að löndun lokinni og við erum nú á landleið með 24 tonn eftir þrjú hol. Við vorum að nota síðasta dag kvótaársins,“ segir Birgir Þór.

Bergur VE landaði í Neskaupstað sama dag að aflokinni stuttri veiðiferð. Jón Valgeirsson skipstjóri var ánægður með aflabrögðin. „Aflinn var ýsa og þorskur sem fékkst í fimm holum. Við vorum að veiðum á Glettinganesflaki og þarna var töluvert af fiski innan um síldina,“ segir Jón.

Nýjustu fréttir

Tólf ferðir á dag til og frá Eyjum frá 8. júní – uppfært
Högum okkur
Herjólfur frestar 8 ferða áætlun 
Karlakór Vestmannaeyja með vortónleika
Eyjagöng: Borað yfir 120 metra á rúmri viku
Nei, það er ekki glæpur
Nethamar hætt starfsemi
Nýr Þjóðarpúls Gallup: Breytingar á fylgi í Suðurkjördæmi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.