Dregið saman safn nýrra og eldri verka um Eldfell

Vestmannaeyjabær býður til opnunar á Til fundar við Eldfell í Safnahúsi Vestmanneyja, laugardaginn 9. september kl. 16.

Sýningin er ávöxtur af samtali tveggja listamanna, sýningastjóra og mannfræðings um sameiginlegan áhuga þeirra á Eldfelli, sem leiddi af sér samstarfsverkefni í tilefni 50 ára afmælis eldfjallsins.

Á sinni stuttu ævi hefur Eldfell og sagan um gosið veitt fólki um allan heim innblástur. Það hefur sótt eldfjallið heim, hvert á sínum forsendum, til að kynnast og upplifa þennan merka stað. Á sýningunni verður í fyrsta sinn dregið saman safn verka, bæði nýrra og eldri, eftir um tuttugu íslenska og erlenda listamenn, rithöfunda og fræðimenn sem hafa rannsakað Eldfell. Á sýningunni verða teikningar, málverk, textíll, ljósmyndir, þrykk, jarðfræðilegir skúlptúrar, kvikmyndir og ritaður texti.

Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri, opnar sýninguna sem nær yfir þrjá sali safnsins og er ein af viðameiri sýningum safnsins í ár. Sýningarstjórar Ilana Halperin og Vala Pálsdóttir verða viðstaddar ásamt hluta þátttakenda í sýningunni.

Frekari upplýsingar um sýninguna má finna hér.

Nýjustu fréttir

Tveir dæmdir eftir þjófnað úr dósagámi ÍBV
Aglow samvera í kvöld
Ísfélagið komið með tvo þriðju af loðnukvótanum
„Loðna með suðurströndinni og henni fylgir mikill fjöldi hvala”
5. bekkur kynnti sér loðnuna í uppsjávarvinnslu VSV
Kallar eftir tafarlausum úrbótum
Kokkurinn heldur áhöfninni gangandi  
Þegar þú lend­ir í svona ferðu að hugsa hlut­ina allt öðru­vísi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.