Allt undir og frítt á völlinn

Fótbolti.net fer yfir stöðuna þegar lokaumferð Bestu deildar karla fer fram í dag, laugardag. ÍBV mætir Keflavík kl. 14.00 og fara allir leikirnir í neðri hlutanum fram á sama tíma. Eitt lið er fallið; Keflavík féll fyrir tveimur umferðum síðan.

Fjögur lið geta fylgt Keflvíkingum niður í Lengjudeildina, ÍBV, Fylkir, HK og Fram. Eina liðið sem er öruggt í neðri hlutanum er KA.

Um ÍBV segir: – ÍBV er í fallsæti: tveimur stigum frá öruggu sæti og með verstu markatöluna af liðunum sem geta fallið. Liðið á leik gegn föllnu liði Keflavíkur á heimavelli í lokaumferðinni. ÍBV þarf að vinna til að eiga möguleika á því að halda sæti sínu í deildinni og eina örugga leið liðsins til að bjarga sér frá falli er að vinna með að lágmarki sjö mörkum gegn Keflavík. Sigur með minni mun og hagstæð úrslit á Akureyri eða í Árbænum bjargar liðinu frá falli.

Það er því ástæða til að fjölmenna á Hásteisvöll en frítt er á völlinn og ýmislegt skemmtilegt í boði fyrir gesti.

Mynd Sigfús Gunnar – Úr leik ÍBV og Fram í sumar.

 

Nýjustu fréttir

Eyjamenn sækja toppliðið heim
Hlý orð Sigurjóns glöddu Sigurgeir, hans gamla kennara
Sigtryggur Daði áfram hjá ÍBV
Fyrsta pysja ársins fundin
Gleraugun nauðsynleg þegar sólmyrkvinn skellur á
Deiliskipulagi breytt vegna World Class við Hástein
Tap hjá ÍBV á útivelli gegn Grindavík/Njarðvík
Glódísi Dúnu hlakkar til að hefja nýjan kafla
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.