Grænar Vestmannaeyjar og orkuöryggi verði tryggt

Vestmannaeyjabær stefnir á full orkuskipti í Vestmanneyjum og forsenda þess er að Landsnet ákveði að leggja tvo nýja raforkustrengi til Vestmannaeyja. Þetta kemur fram í skýrslu starfshóps, sem Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, skipaði til að vinna tillögur um aðgerðir sem heyra undir málefnasvið ráðuneytisins og stuðlað geta að því að efla samfélagið í Vestmannaeyjum.

Starfshópurinn, sem var skipaður þeim Árna Sigfússyni, sem var formaður hópsins, Írisi Róbertsdóttur, bæjarstjóra í Vestmannaeyjum og Gísla Stefánssyni, æskulýðsfulltrúa og bæjarfulltrúa, kynnti tillögur sínar á fundi í Eldheimum í dag. Að lokinni kynningu fékk Guðlaugur Þór skýrsluna í hendur og þakkaði hann nefndinni fyrir vel unnin störf. Sagði skýrsluna athyglisverða og að hún ætti ekki eftir að rykfalla hjá ráðuneytinu.

Meðal þess sem kemur fram í skýrslunni er að raforkuþörf í Vestmannaeyjum er nú þegar 58 MW. Þar af eru um 44 MW ótryggur flutningur, sem þýðir að olía er notuð þegar ekki fæst orka. Þá eru ótalin uppbyggingarverkefni sem koma eiga til framkvæmda á næstu árum, þ.e. aukin raforkuþörf í fiskimjölsframleiðslu, landeldi og landtengingu skipa. Þessi verkefni kalla eftir a.m.k. 35-45 MW viðbótar raforkuþörf á næstu árum. Það má því áætla að árið 2030 verði heildarraforkuþörf í Vestmanneyjum yfir 100 MW.

Að því er fram kemur í skýrslunni er eina leiðin til að tryggja öryggi raforkuflutninga og hringtengingu og ná 100% orkuskiptum í Vestmannaeyjum, líkt og áætlanir stjórnvalda gera ráð fyrir, að lagðir verði tveir nýir  rafstrengir til Vestmannaeyja. Að öðrum kosti verði samfélagið keyrt áfram á jarðefnaeldsneyti.

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra: „Vestmannaeyjar verða að taka þátt í vegferð stjórnvalda að 100% orkuskiptum. Staðan í Eyjum er óásættanleg – samfélagið hefur verið keyrt að meginstefnu á jarðefnaeldsneyti frá áramótum vegna bilunar í sæstreng. Ég fagna tillögum starfshópsins en skýrslan sýnir að nauðsynlegt er að bregðast við stöðunni með skipulögðum verkefnum. Til þess að Vestmannaeyjar geti orðið „græna eyjan – samfélag sem skarar fram úr og er öðrum fyrirmynd í þessum efnum þá verður að tryggja orkuöryggi og að samfélagið sé sjálfu sér nægt um raforku og varma.“

 

Meðal annarra tillagna sem fram koma í skýrslunni er að:

  • Sett verði af stað vinna að kanna frekari kosti við nýtingu lághita og annarra staðbundinna orkuöflunarkosta.
  • Vestmannaeyjabær verði fyrsta sveitarfélagið í heiminum til að taka upp stefnu sem miðar að „100% fisk“, þ.e. 100% fullvinnslu og fullnýtingu allra sjávarafurða. Samhliða verði unnið að eflingu hringrásarhagkerfisins og grænni atvinnuuppbyggingu.
  • Vestmannaeyjabær kanni frekar kosti þess að vinna að undirbúningi stofnun jarðvangs í Vestmannaeyjum: „Vestmannaeyjar, Unesco Global Geopark“.
  • Sett verði af stað vinna við að styðja við nýsköpunarumhverfið í Vestmannaeyjum hvað varðar verkefni á málaefnasviði ráðuneytisins.

Ráðuneytið og Vestmannaeyjabær munu fylgja eftir tillögum starfshópsins.

Mynd: Ráðherra og nefndin, Íris, Guðlaugur Þór, Árni og Gísli.

Nýjustu fréttir

Birgir Nielsen um tónlistina og lífið á skólabekk  
Ráðið segir tafir sýna mikilvægi betri undirbúnings
Opnunarhátíð Sea Life – myndasyrpa
Ísfélagið á vörusýningu á Englandi
Perlað fyrir von og samstöðu í Höllinni í dag
ÍBV sigraði Stjörnuna í Eyjum
Könnun sýnir breytt fylgi flokka í Eyjum
Ræddu kvartanir og þjónustu við fulltrúa Terra

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.