Ágæt veiði en skítviðri framundan

Ísfisktogararnir Bergur VE, Vestmannaey VE og Gullver NS voru ýmist að landa fullfermi í gær eða á landleið með fullfermi. Öll voru skipin að veiðum austur af landinu.

Bergur VE landaði í Neskaupstað í gærmorgun. Jón Valgeirsson skipstjóri segir í samtali við vefsíðu Síldarvinnslunnar að veiðiferðin hafi gengið vel.

„Það var fínasta veiði í Litladýpi og á Skrúðsgrunni en aflinn er langmest þorskur og ýsa. Þetta er ágætur fiskur sem ætti að henta vel fyrir vinnslurnar,“ segir Jón.

Vestmannaey var á leið til Vestmannaeyja í gær. Rætt er við Egil Guðna Guðnason skipstjóra á vef Síldarvinnslunnar.

„Við vorum á Gerpisflaki, á Fætinum og á Skrúðsgrunni og það var góð þorsk- og ýsuveiði þarna. Það er ekki hægt að kvarta yfir aflabrögðunum,“ segir Egill Guðni.

Gullver kom til Seyðisfjarðar á sunnudag en landað var fullfermi eða 114 tonnum úr skipinu í gær. Þórhallur Jónsson skipstjóri lét vel af þorsk- og ýsuveiði. „Aflinn hjá okkur var mest þorskur en einnig ýsa og karfi. Það gekk vel að ná í þorskinn og ýsuna en erfiðar var að ná karfanum. Við reyndum einnig við ufsa en það var sama gamla sagan, það kom lítið út úr því. Við fengum þorskinn og ýsuna á Fætinum og á Skrúðsgrunni en karfinn fékkst í Berufjarðarálnum,“ segir Þórhallur.

Allir skipstjórarnir gerðu veðurhorfur næstu daga að umtalsefni og sögðu horfurnar ekki glæsilegar. Töluðu þeir um að það stefndi í helvítis ótíð og skítviðri og næsta vika yrði einfaldlega hundleiðinleg veðurfarslega.

Nýjustu fréttir

Eyþór leiðir – uppfært
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins er í dag
Vestmannaeyjar í gegnum linsu liðins tíma
Gleðilegan kjördag
Spennandi prófkjör Sjálfstæðismanna í Eyjum
Pílan: Deildarkeppni lokið – Útsláttur hefst
Fasteignaumfjöllunin – útsýni á heimsmælikvarða
Fyrir þig en ekki sjálfa sig
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.