Kveðja til Grindvíkinga

Bæjarstjórn Vestmannaeyja sendi Grindvíkingum eftirfarandi kveðju núna í dag:

Bæjarstjórn Grindavíkur
c/o Ásrún Helga Kristinsdóttir
forseti bæjarstjórnar

Kæru Grindvíkingar!

GrindavíkFyrir hönd bæjarstjórnar Vestmannaeyja sendi ég ykkur okkar hlýjustu stuðningskveðjur í þeim erfiðleikum sem þið gangið nú í gegnum. Þið getið reitt ykkur á að við Eyjamenn munum gera allt sem í okkar valdi stendur til að létta undir með ykkur og aðstoða ef á þarf að halda. Það hefur líka verið ánægjulegt að sjá hversu margir Vestmannaeyingar hafa nú þegar upp á eigin spýtur boðið fram húsaskjól og aðra aðstoð; örugglega minnugir þess hversu vasklega Grindvíkingar gengu fram í aðstoð við okkur í eldgosinu á Heimaey fyrir 50 árum. Það gleymist aldrei.

Með einlægri von um að betur fari en á horfist,

Páll Magnússon,
forseti bæjarstjórnar Vestmannaeyja

Nýjustu fréttir

Vikan í Eyjum: Ólögmætar uppsagnir, óveður og góðgerð í fullri Höll
Bleik messa í Landakirkju
Seinni ferðir Herjólfs falla niður vegna veðurs og sjólags
„Vestmannaeyjar eru hluti af Suðurkjördæmi alla daga ársins“
Locomotive Breath flutt til heiðurs Jóa Listó
Áhyggjur af fjölda barna sem bíða eftir greiningu
Metmæting á kótilettukvöldi í Höllinni
Aron Lucas Vokes með slitið krossband
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.