Styrktarsjóður Landakirkju

Styrktarsjóður Landakirkju veitir fólki sem hefur fasta búsetu í Eyjum aðstoð fyrir jólin og erum við byrjaðir að taka við umsóknum um aðstoð.  Sjóðurinn getur að sjálfsögðu ekki starfað nema vegna velvildar fyrirtækja og einstaklinga sem hafa í gegnum árin verið afar rausnarleg í framlögum sínum. Slíkt hefur leitt til þess að þau sem eiga erfitt með að ná endum saman hafa getað haldið gleðilegri jól en ella.

Prestar Landakirkju munu taka á móti fólki á skrifstofum sínum, og auðvitað er betra að vera fyrr en seinna á ferðinni, svo úthlutun geti farið sem fyrst fram í desember.
Við viljum þakka þeim fjölmörgu sem hafa styrkt sjóðinn með framlögum sínum í gegnum tíðina um leið og við óskum Vestmannaeyingum nær og fjær gleðilegrar og kærleiksríkrar aðventu.

Fyrir þá sem vilja styðja styrktarsjóðinn er hægt að milli færa á eftirfarandi reikning:
Bnr. 0133-15-000759
kt. 630321-0340

Guðmundur Örn Jónsson og Viðar Stefánsson prestar í Landakirkju.

Nýjustu fréttir

Ekki brotna! Fræðsla og forvarnir um beinheilsu
Margrét aðstoðar Miðflokkinn
Herrakvöld fótboltans
Fundur bæjarstjórnar í beinni
Samgöngur og sannindi
Staðan í Landeyjahöfn
Vestmannaeyjahöfn, lífæð samfélagsins
Sæunn Magnúsdóttir er tilbúin í slaginn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.