The Puffin Run fer fram í Vestmannaeyjum þann 4. maí 2024 kl. 12:30. Skráning er hafin í hlaupið en uppselt var í hlaupið á síðasta ári. Í hádeginu voru rúmlega 150 hlauparar skráðir til leiks. Nánari upplýsingar má nálgast hér að neðan.
Forskráning er á hér á netskráning.is og takmarkast fjöldi þátttakenda við 800 manns.
Í boði verður einstaklingskeppni í karla- og kvennaflokki sem og boðhlaup 2 og 4 manna í karla-, kvenna-, og blönduðum flokki. Hlauparar geta þá hlaupið 2*10 km eða 4*5 km.
Boðhlaup
Einn aðili skráir liðið til keppni og greiðir þátttökugjald fyrir allt liðið í þeirri skráningu.
Stuttu fyrir hlaupið kemur tengill fyrir þann sem skráði liðið þar sem hann skráir inn einstaklinga sem eru í liðinu.
Skráningargjaldið er:
Gögn verða afhent í Sportvörum Dalvegi 32a í Kópavogi, fimmtudaginn 25. apríl og föstudaginn 26. apríl
Veitt eru peningaverðlaun til fyrstu þriggja karla og kvenna.
Einnig eru verðlaun fyrir fyrsta sæti í tvímennings og fjögurra manna sveit karla, kvenna og blandaðri.
Rásmark og endastöð verður á Nausthamarsbryggju.
Þeir sem eru að fara seinni parta hlaupsins fá akstur frá Nausthamarsbryggju að skiptistöð. Óskað er eftir að þeir sem eru búnir að hlaupa fyrri hluta, taki á móti liðsfélaganum við markið þar sem ljósmyndarar verða á staðnum.
Þátttakendur komast í sturtu í Sundlaug Vestmannaeyja eftir hlaup.
Allar nánari upplýsingar inn á vef og facebooksíðu hlaupsins thepuffinrun.com.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst