Fulltrúar Byggðarstofnunar heimsóttu Laxey

Á vef Byggðarstofnunar kemur fram að fulltrúar fyrirtækjasviðs Byggðastofnunar heimsóttu fyrir stuttu fyrirtækið Laxey ehf. í Vestmannaeyjum en félagið vinnur að uppsetningu á stórtækum rekstri á laxeldi á landi í Vestmannaeyjum. Félagið er m.a. að reisa eina fullkomnustu seiðaeldisstöð í heimi í botni Friðarhafnar og er jafnframt að byggja upp matfiskaeldi og síðar vinnslu í Viðlagafjöru, austast á Heimaey. Stöðin er einnig mjög umhverfisvæn og þarf afar lítið vatn til framleiðslunnar þar sem hún endurnýtir 99,8% vatnsins og þarf því ekki nema um 2 lítra á sekúndu fyrir framleiðslu í fullum afköstum.

„Byggðastofnun hefur sýnt í verki að stofnunin er öflugur bakhjarl við nýsköpun og fjármögnun atvinnulífsins á landsbyggðinni.“ segir Hrafn Sævaldsson fjármálastjóri Laxeyjar í Vestmannaeyjum sem er að reisa eina fullkomnustu seiðaeldisstöð í heimi.

Tilgangur heimsóknarinnar var, að sögn Hrundar Pétursdóttur forstöðumanns fyrirtækjasviðs Byggðastofnunar, að fylgja eftir skilyrðum tækjaláns sem stofnunin veitti Laxey og skoða uppbygginguna. Hrund segir fyrirtækið standast allar þær kröfur sem settar voru af hálfu stofnunarinnar og að heimsóknin hafi verið afar fróðleg og áhugavert að fylgjast með um 120 starfsmönnum vinna að framkvæmdum og uppsetningu á búnaði fyrir félagið.

Hrafn Sævaldsson fjármálastjóri Laxeyjar segir að vel gangi að koma seiðastöðinni upp og góður stuðningur Byggðastofnunar, í formi láns til búnaðarkaupa frá Akva Group Land Based í Danmörku, hafi skipt félagið mjög miklu máli. Hann segir að lánaferlið með Byggðastofnun hafi gengið mjög vel og að lánið frá Byggðastofnun hafi verið þýðingarmikið skref í fjármögnun verkefnisins.„Byggðastofnun hefur sýnt í verki að stofnunin er öflugur bakhjarl við nýsköpun og fjármögnun atvinnulífsins á landsbyggðinni. Stofnunin hefur tekið þátt í fjármögnun verkefnisins með afgerandi hætti“.

Hrafn segir að merkur áfangi hafi náðst nýlega, þegar fyrstu hrognin frá Benchmark Genetics, komu inn í seiðastöðina og hefur eldið gengið framar vonum, afföll verið minni en áætlanir gerðu ráð fyrir. Hrafn segir að gæði afurða úr eldislaxi séu mikil og laxinn sé vinsæl matvara víða um heim. Ætlunin sé að matfiskastöðin í Viðlagafjöru muni framleiða hágæða matvöru með hreinni umhverfisvænni orku, í hreinum sjó og verði fluttar sjóleiðina á markaði til að minnka kolefnisspor framleiðslunnar. Hann segir aðstæður til landeldis í Vestmannaeyjum mjög hagfelldar. Þá segir Hrafn að affall frá stöðinni verði hreinsað og úrgangur nýttur til áburðarframleiðslu. Seiði verði bólusett en engin lyf notuð í eldinu. Með því verði sköpuð náttúruleg hágæða matvara með sjálfbærum hætti.

Áætlanir gera ráð fyrir að þegar seiðastöðin verður komin í full afköst seinna á þessu ári verði þar framleidd um 4 milljónir, 100 gr. laxaseiða á ári og matfiskaeldisstöðin muni svo framleiða um 32 þúsund tonn af fullöldum laxi á ári, þegar allir 6 áfangar verkefnisins verða fullbyggðir og komnir í rekstur. Fyrirtækið mun með beinum hætti skapa að minnsta kosti 100 ný störf, auk fjölda óbeinna starfa og er félagið meðal allra stærstu fyrirtækja í Vestmannaeyjum. Þá fylgja starfseminni mikil aukin umsvif í flutningum um höfnina í Eyjum.

Mynd: Hrafn Sævaldsson ásamt fulltrúum Byggðarstofnunar. Mynd fengin af heimasíðu Byggðarstofnunar.

Nýjustu fréttir

Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.