Högg upp á tíu til tólf milljarða fyrir Vestmannaeyjar

„Ljóst er að loðnubresturinn í ár er þungt högg fyrir landið allt því venjuleg vertíð skilar um 30 milljörðum í þjóðarbúið. „Hafró virðist hafa týnt loðnunni sem þeir fundu í haust. Ég skil ekki af hverju, miðað við verðmætin sem eru undir, að ríkið setji ekki meiri pening og kraft í loðnuleit. Loðna skiptir verulegu máli fyrir þjóðarbúið og hvar er okkar fólk á þingi?“ spyr Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri nú þegar stefnir í algjöran loðnubrest.

Vestmannaeyjar eru með þriðjung loðnakvótans og því mikið í húfi fyrir allt samfélagið, fólkið, fyrirtækin og bæjarsjóð. Íris viðurkennir það en segir að ekki sé gert ráð fyrir tekjum af loðnu þegar unnið er að gerð fjárhagsáætlunar enda ekki hægt að gera ráð fyrir henni eða hversu mikill kvóti verði gefinn út.

„Við höfum borið gæfu til að stýra fjármálum bæjarins vel og svo hefur verið í gegnum árin. Gerum ekki ráð fyrir útsvarstekjum af loðnu í fjárhagsáætlun til að hafa borð fyrir báru. Þetta eru ekki bara tekjurnar okkar heldur allra hagaðilanna einnig. Í loðnuskýrslu frá 2020 var gert ráð fyrir 18 milljarða vertíð. Hlutur Vestmannaeyja er einn þriðji. Atvinnutekjur 1 milljarður og heildartekjur  fyrirtækjanna 6 til 7 milljarðar. Á um 30 milljarða vertíð eru atvinnutekjurnar um  1,8 milljarðar og  tekjur  fyrirtækjanna 10 til 12 milljarðar. Í skýrslunni var yfirfært tap á Reykjavík miðað við sömu forsendur 8  til 9 milljarðar í útsvarstekjum. Það er því algjörlega galið að Hafró fái ekki meira fjármagn til að leita að loðnu.“

Ekki öll eggin í sömu körfunni

„Loðnuleysið hefur umtalsverð áhrif á afkomu félagsins og starfsmanna bæði til lands og sjávar. Þá er það mjög slæmt fyrir viðskiptin að hafa ekki stöðugra framboð á mörkuðum fyrir loðnuafurðir,“ segir Eyþór Harðarson, útgerðarstjóri Ísfélagsins sem einnig er oddviti Sjálfstæðisflokksins í bæjarstjórn.

„Sem bæjarfulltrúi segi ég að við Eyjamenn höfum þurft að aðlaga okkur að sveiflum í fiskveiðum svo lengi sem við munum. Sem betur fer hefur þróunin orðið þannig að eggin eru ekki öll í sömu körfunni og loðnubrestur ekki eins mikið áfall og áður var fyrir sjávarútvegsfyrirtækin. Þrátt fyrir það hefur loðnubrestur mikil áhrif á tekjur fjölda fólks og þeirra fyrirtækja sem þjónusta sjávarútvegsfyrirtækin. Það er ekkert annað en að halda áfram og tækifærin koma á einn eða annan hátt.“

 

Loðnuskipin okkar liggja verkefnalaus í landi en færeysk skip hafa fyllt upp í skarðið einhverju leyti með kolmunna. Hér er Norðingur frá Klakksvík í Færeyjum að koma með fullfermi að landi í Eyjum.

 

Mynd Addi í London. 

Nýjustu fréttir

Spurt og svarað: Jóhann Ingi frá Miðflokknum
Undanúrslitin hefjast – ÍBV mætir Haukum í fyrsta leik
Gleðilegt sumar
Lundinn sestur upp
Áætlunarflug framlengt vegna stöðunnar í Landeyjahöfn
Álfsnesið þurfti frá að hverfa
Íris um samgöngumálin
Hoppað á vagninn
viðburðir
Andres Stefan Mbl
15. apríl 2026
20:00
Borgarafundur í Höllinni
Höllin

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.