Síðasta sumar héldu fulltrúar frá Merlin Entertainments kynningarfund á verkefninu sínu sem núna er að verða að veruleika. En eins og flestir vita ætla tveir Beluga hvalir að flytja í Klettsvíkina í Vestmannaeyjum. Það hefur tekið langan tíma að landa öllum samningum í kringum verkefnið eins og gefur að skilja, en núna eru þeir allir í höfn. Eyjafréttir tóku viðtal við fulltrúa Merlinar í síðasta sumar, sem er vel við hæfi að birta aftur að hluta til núna. Einnig mælum við með myndbandi frá Merlin sem er hér að neðan.
„Þetta hefur tekið lengri tíma en við höfðum vonað en við er samt bjartsýn,“ sögðu þau James Burleigh og Christine Dure-Smith þegar blaðamaður spurði út í framvindu mála. „Öll okkar samtöl við fólk hérna á Íslandi hafa verið jákvæð en það eru engin fordæmi fyrir svona löguðu, þetta er fordæmið, þannig að allir vilja vera vissir um að hér sé rétt staðið að verki. Þetta verkefni kom mjög óvænt þannig allir þurfa að fá sínar skýringar á því og þurfum við að sýna þolinmæði,“ sagði James.Á öllum þeim stöðum sem heyra undir Merlin er það stefna fyrirtækisins að notast við heimamenn eins og unnt er. „Jafnvel þótt við verðum með erlenda sérfræðinga til að byrja með þá viljum við þjálfa upp heimamenn svo þeir geti tekið við innan fárra ára. Í verkefni sem þessu, þar sem höfuð tilgangurinn er að gera það rétta í stöðunni, er mjög mikilvægt að samfélagið í heild sinni finnist það vera partur af verkefninu og verkefnið partur af þeim. Að því leiti finnst okkur Keikó verkefnið vera frábrugðið því sem við erum að gera þar sem þau voru frekar mikið út af fyrir sig. Við viljum vera staður fyrir Vestmannaeyjar frekar en fyrir Merlin,“ sagði Christine.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.