Það er svo margt mikilvægara í lífinu en fótbolti og eitt af því er fjölskyldan

Heimir Hallgrímsson, landsliðsþjálfari, hefur útskýrt af hverju hann fékk sér sæti hjá fjölskyldu sinni fyrir leik gegn Króatíu í kvöld, segir í frétt 433.is

Ísland þurfti að sætta sig við 2-1 tap gegn Króötum og eru strákarnir okkar á heimleið eftir hetjulega baráttu á HM.
Það vakti athygli þegar Heimir fékk sér sæti í stúkunni fyrir leik en hann útskýrði það í leikslok á blaðamannafundi. ,,Það var mikið að gera í gær og ég gat ekki hitt fjölskylduna í gær og sama í dag. Fyrst þau voru svona nálægt bekknum þá settist ég hjá þeim,“ sagði Heimir.
,,Við fórum yfir hlutina hvernig við ætluðum að leggja Króata af velli. Ég sagði það síðast að það er svo margt mikilvægara í lífinu en fótbolti og eitt af því er fjölskyldan. Við reynum að finna þau gildi sem gefur okkur mest og eitt af því er fjölskyldan.“
,,Væmið svar við væminni spurningu.“

Nýjustu fréttir

Gígja og Leifur tóku heimilið í gegn   
Yfir tvær milljónir umbúða fara árlega í gegnum móttökuna í Eyjum
Tvöfaldur handboltadagur í Íþróttamiðstöðinni
Leggja til lækkun fasteignaskatts
ÍBV hafði betur í sjö marka leik gegn bikarmeisturunum
Nýir eigendur taka við Kránni
Undirbúa starfslok hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands
Hvað ef internetið lokaði klukkan 18?
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.