Hörpuskel að hætti Jóa Fel

Ritstjóri eyjar.net er mikill áhugamaður um matreiðsluþætti og veit fátt skemmtilegra en að sjá góðan matreiðsluþátt. Yfirleitt reynist í framhaldi erfiðara að elda eftir þáttunum en stundum hefur það tekist með góðum árangri. Þessi uppskrift sem er hér að neðan er frá Jóa Fel.3 stk hörpudiskur pr.mann
50gr smjör
50gr olía
2 stk hvítlauksgeirar

Smjör, olía og hvítlaukur er unnið saman í gott hvítlaukssmjör. Setjið hvítlaukssmjörið á pönnu. Þá er Fiskurinn settur á pönnuna og létt steiktur. Fiskurinn er svo settur inní ofn við c.a 200° í 4-5 mín. Áður en hann er borinn fram.

Sósa
1 msk hvítlaukssmjör
1 stk shallotulaukur
2 dl hvítvín
2 dl fiskisoð
1 dl rjómi
1 msk smjör
Salt og pipar

Steinselja
Laukurinn er létt steiktur úr hvítlauksmjöri. Soð og hvítvín er sett saman við og látið sjóða niður um helming, þá er rjóma bætt við, kryddað með salt og pipar. Í restina er svo smjör hrært saman við, eftir það má sósan ekki sjóða.
Setjið upp á disk og stráið saxaðri steinselju yfir.
Berið fram með grilluðu brauði.

Nýjustu fréttir

Ekki einhugur um milljóna framlag til ÍBV
Loðnuvertíðin hafin í Eyjum
Heiðurshjónin Hjalti og Vera Björk Eyjafólk ársins 2025
Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.