„Þetta er frábær síða, þarna eru góðar hljóðupptökur, hægt er að stækka myndirnar mjög mikið og allt er notendavænt fyrir blinda,” segir Bergvin Oddsson, formaður ungmennahreyfingar Blindrafélagsins, um erótíska heimasíðu sem hentar blindum og sjónskertum vel.
Bergvin segist hafa fengið upplýsingar um síðuna frá alþjóðafulltrúa blindra sem staddur var í Hollandi en á heimasíðu blindrasamtakanna þar var vísað á heimasíðuna soundsdirty.com. Bergvin segir blinda og sjónskerta eiga erfitt með að nota tölvumús. Þess í stað noti þeir tab-takkann til fara á milli hlekkja. Þetta sé sérstaklega auðvelt á SoundsDirty og þá sé hægt að stækka myndir mikið og njóta hljóðupptaka af kynlífi.
„Ég man bara ekki eftir að hafa rekist á klámsíðu sem kemur jafn vel til móts við þarfir sjónskertra, en reyndar hef ég ekki lagt metnað minn í að leita slíkar síður uppi,” segir Bergvin og skellir upp úr.
„Ég er bara virkilega ánægður með hollenska kollega mína. Margir blindir hafa gaman af klámi, rétt eins og annað fólk, og því finnst mér rétt að benda öðrum á síðuna,” segir Bergvin.-