Í jólaboð til ömmu bróður míns

Á stórhátíðum reynir á foreldra og þá skýrast fjölskyldutengslin upp sem hjá sumum eru orðin ansi flókin. Hvernig verður þetta hjá okkur um jólin?
Nú þegar hin mikla fjölskylduhátíð nálgast standa yfir samningaviðræður í mörgum fjölskyldum um hvar börnin eigi að vera um jól og áramót. Hverjir ætla að vera hvar  á aðfangadag og hvernig umgengnin verði um jólin? Þá reynir mjög á fjölskyldutengslin hvernig málum er komið fyrir og hve auðvelt við gerum  skilnaðarbörnum að umgangast fjölskyldur sínar,  bæði móður-og föðurfjölskyldu.

Í flestum tilfellum tekst foreldrum skilnaðarbarna að sýna myndugleik og hafa hagsmuni barna í fyrirrúmi þar sem allt fer fram í sátt og samlyndi. Margir hafa hefðbundið fyrirkomulag og börnin skiptast á að vera hjá pabba og mömmu um jólin. Í sumum fjölskyldum er hins vegar ósamkomulag og nánast stríð fyrir hver jól og því miður verða börnin stundum bitbein deilna og spennustuðullinn hækkar hjá allri stórfjölskyldunni. Afar og ömmur blandast jafnvel inn í málið og missa svefn vegna óöryggis og spennu í sambandi við jólin. Aðrir finna fyrir depurð að fá ekki að hitta sín eigin barnabörn og finna um leið  fyrir kvíða að taka í fyrsta sinn á móti stjúpbarnabörnum sínum við jólaborðið? Hvernig verður þetta eiginlega um jólin?

Í skólum heyrist á samtölum nemenda að þeir eru mikið að velta þessu fyrir sér eins og gefur að skilja. Kennari einn varð vitni að samtali barna:
” hún er sko eiginlega systir mín núna af því pabbi hennar flutti inn til okkar um daginn”…  og annar sagði við skólafélaga sinn:  “pabbi þinn ætlar að vera hjá okkur um jólin en hvar verður þú?” Svo var það einn 7 ára sem var að útskýra fyrir umsjónarkennara sínum hvert hann færi í jólaboð og sagði svo í lokin. “hún er sko amma bróður míns”

Nýlega kynnti Sigrún Júlíusdóttir prófessor í félagsráðgjöf í HÍ niðurstöður rannsóknar sem hún gerði ásamt Jóhönnu Rósu Arnardóttir, MA við félagsráðgjafarskor HÍ  á upplifun ungmenna af skilnaði foreldra.(Sýn ungmenna á foreldratengsl, stuðning og röskun í kjölfar skilnaðar)  Þar kemur fram að áhrif skilnaðar á börnin fara að miklu leiti eftir því hvernig hinir fullorðnu haga sér t.d. hvernig staðið er að skilnaðinum, hver segir börnum frá skilnaðinum og hvenær í skilnaðarferlinu þau fá að vita hvað í vændum er.  Hægt er að nálgast niðurstöður rannsóknarinnar hjá Rannsóknasetri í barna-og fjölskylduvernd sjá nánar  http://www.rbf.is Mikilvægt er að foreldrar ræði hreinskilningslega við börn sín og hugi að líðan þeirra og aldrei er það nauðsynlegra en á hinni miklu fjölskylduhátíð.  Foreldrar hafið hagsmuni barnanna að leiðarljósi nú sem endranær.
  
Helga Margrét Guðmundsdóttir
verkefnisstjóri hjá Heimili og skóla – landssamtökum foreldra
og jafnframt stjórnarmaður í Félagi stjúpfjölskyldna.

Nýjustu fréttir

Samgöngur  við Eyjar settar í hættu?
Gamla myndin – Kartöflugarðar í Eyjum 
Landsbankinn og N1 bætast í hluthafahóp Eyjaganga
Eló heldur tónleika í Eyjum
Þórunn Sveinsdóttir VE kveður Eyjar
Rauði krossinn í Eyjum fagnaði 85 árum með opnu húsi
Sveiflur í veðri og ógnar brim
Gul viðvörun – Austanhríð

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.