Helstu verkefni lögreglu frá 3. til 10. desember 2007.

Það var frekar rólegt hjá lögreglunni í vikunni sem leið. Samt sem áður hafði lögreglan í ýmsu að snúast við að aðstoða borgarana við hin ýmsu tilvik sem upp komu.

Ein eignaspjöll voru kærð til lögreglunnar í vikunni sem leið en um er að ræða skemmdir á bifreið sem stóð við Brimhólabraut 34.  Bifreiðinni hafði verið lagt við húsið þann 6. desember sl. á milli kl. 18:30 og 21:00 en á meðan höfðu einhverjir eða einhver brotið hliðarspegil hægra megin á bifreiðinni.  Þeir sem einhverjar upplýsingar hafa um hver eða hverjir þarna voru að verki eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögreglu.

 

 

 

Tvö umferðaróhöpp voru tilkynnt til lögreglu í vikunni en í báðum tilvikum var um minniháttar óhöpp að ræða og engin slys á fólki. Bæði þessi óhöpp eru rakin til hálku.

Einn ökumaður var sektaður vegna brota á umferðarlögum en hann hafði lagt öfugt miðað við akstursstefnu á Heiðarvegi. 

Þá voru um 30 eigendur ökutækja boðaðir til skoðunar með ökutæki sín.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Nýjustu fréttir

Sýndu fjölbreytni, metnað og sköpunargleði
ÍBV stelpurnar gerðu jafntefli við Þrótt R.
Lokadagur TM-mótsins: Gleði, keppni og ógleymanlegar minningar
Vestmannaeyjabær: Ráðið í stöðu deildarstjóra launadeildar
Tæplega 2.000 farþegar nýttu áætlunarflugið
Rakel býður upp á Reikiheilun í Eyjum
ÍBV sækir Þrótt heim í dag
Viðgerð Herjólfs dregst fram í júlí
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.