Óhjákvæmilegt að fella niður veggjald í Hvalfjarðargöngum

Oddviti Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi sagði í gærmorgun í viðtali við Stöð 2 að óhjákvæmilegt veggjald í Hvarfjarðargöngunum verði fellt niður. Að öðrum kosti verði að taka upp gjöld á öðrum stöðum á þjóðveginum.
Þessi orð eru ótrúleg í ljósi þessi að á þjóðveginum Þorlákshöfn – Vestmannaeyjar hefur alltaf verið veggjald og hefur háttvirtur þingmaður ekkert tjáð sig um þá skattheimtu.

Þessi ágæti oddviti Samfylkingarinnar ætti að ræða við samflokksmann sinn samgönguráðherrann um þessi málefni og sjá hvort að honum verði eitthvað ágengt til breytinga á þessum vegtollum.
Kristján L. Möller, samgönguráðherra hefur hins vegar þvert á stefnu flokksfélaga sinna í sínu kjördæmi lýst því yfir að málið verði ekki sett í forgang í ráðaneytinu og ekki sé gert ráð fyrir því í samgönguáætlun að gjaldið verði fellt niður.

Best þykja mér orð Guðbjartar Hannessonar oddvitans góða þegar hann segir að hvergi sé rukkað á þjóðveginum sérstakt veggjald og því stríði það gegn jafnræðisreglu að rukka sérstaklega fyrir umferð í göngin.
Vel má vera að gjaldið í Herjólf sé ekki veggjald en skattur er það á farþega Herjólfs. Og Herjólfur er jú þjóðvegir milli lands og eyja.
Ánægðastur er ég þó með það að þarna hafa eyjamenn eignast góðan bandamann sem tilbúinn er að endurskoða gjaldskrá Herjólfs og á þeim bandamanni þurfum við á að halda í baráttunni fyrir ódýrari og betri samgöngum.

Kjartan Vídó

Nýjustu fréttir

Mótorarnir pantaðir en fjármögnun ótryggð
Framkvæmdir og ferjusigling – myndband
Svava Kristín til liðs við Eyjafréttir
Frá Vestmannaeyjum á borð neytenda í Kína
Kalla eftir sjónarmiðum um atvinnulíf í Eyjum
Gengu yfir Fimmvörðuháls í blíðskaparveðri
Kynntu ráðherra sérstöðu íslensks saltfisks í Portúgal
Stytting Hörgaeyrargarðs færist nær
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.