Kemur ekkert annað til greina en að ná sæti í 1. deild.

Í dag birtum við leikmannakynningu ÍBV í körfubolta. Síðustu helgi áttust við í bikarkeppni KKÍ ÍBV og Keflavík og því er viðeigandi að birta kynningu á Sverri Marinó en hann er fæddur í Keflavík og með Keflavík byrjaði hann að æfa körfubolta.

Sverrir Marinó er búsettur á Seltjarnarnesi en hann er í fjarnámi við Kennaraháskóla Íslands

Fullt nafn:
Sverrir Marinó Jónsson

Fæðingarár -og staður: 
1981 í Keflavík

Fjölskylduhagir & foreldrar:
Er trúlofaður Jónu Grétu Grétarsdóttur.
Foreldrar eru Olga Sædís Bjarnadóttir og Jón Már Sverrisson

Búseta:
Seltjarnarnes

Atvinna:
Er í fjarnámi við Kennaraháskóla Íslands, vinn með náminu á leikskólanum Gullborg

Áhugamál:
Körfubolti, upplýsingatækni, bílar,

Staða á vellinum:
Bakvörður

Hæð:
180 cm

Ferill:
Byrjaði hjá Keflavík með yngri flokkunum og fór svo í Týr , ÍV og spila núna með ÍBV
 
Markmið í lífinu:
Ekki gera í dag það sem þú getur gert á morgun!  
 
Mottó:
Ekkert stress
  
Minnistæðasti leikur:
ÍBV vs.  Keflavík

Erfiðasti andstæðingurinn:
Enginn sérstakur

Hver er grófastur í liðinu:
Veit það ekki

Besti körfuknattleiksmaður fyrr og síðar:
Jordan

Besti körfuknattleiksmaður sem Ísland hefur alið af sér:
Guðjón Skúlason

Uppáhaldslið:
ÍBV, Keflavík og Chicago Bulls

Er framtíðin björt í körfuboltanum í vetur:
Ég myndi segja að framtíðn sé mjög björt hjá okkar flokkum. Það eru allir flokkar hjá okkur í topp

Hvernig líst þér á liðið í vetur:
Mjög vel, sérstaklega ef að við náum að sleppa við meiðsli (og aðrar hindranir ) í hópnum

Í hvaða sæti mun ÍBV enda í vetur ?
Kemur ekkert annað til greina en að ná sæti í 1. deild.

Nýjustu fréttir

Miðasala hafin á Lundaballið
ÍBV og Macron í samstarf
Nýtt skólaár hafið hjá Grunnskóla Vestmannaeyja
Fimm ástæður fyrir JÁ-inu mínu
Stefnir í stærsta ágústmánuðinn í botnfiskvinnslu í langan tíma
Skólasetning GRV fór fram í morgun
Rúmlega tíundi hver hefur kosið utan kjörfundar
Ný strætóáætlun til og frá Landeyjahöfn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.