En ekkert lið frá ÍR ? Jú, jú þeir bara ákváðu upp á sitt einsdæmi að vera ekkert að leggja það á sig að ferðast til Vestmannaeyja til að spila körfubolta, það væri nú allt of erfitt að vera að standa í því. OG LÉTU ENGAN VITA AF ÞESSARI ÁKVÖRÐUN. Þessi framkoma er svo gjörsamlega fyrir neðan allar hellur að menn verða bara orðlausir af undrun. Hvers konar aumingjaskapur er þetta eiginlega ? Krakkarnir frá okkur eru að fara í keppnisferðir víða um land mörgu sinnum yfir veturinn, og telja það ekki eftir sér. En nei, ef það þarf að leggja eitthvað á sig á móti í eitt skipti af okkar mótherjum, þá er bara EKKERT VERIÐ AÐ MÆTA. Það sem svíður mest undan svona framgöngu er að þessir peyjar okkar sem eru að leggja á sig ómælt erfiði við æfingar og keppnisferðir til að taka þátt, og ferðast til þess mörgun sinnum yfir veturinn, fá ekki langþráðan leik á heimavelli. Þetta kemur mest niður á þeim. Þá langaði að SPILA á heimavelli, það er skemmtilegast, það eru laun erfiðisins.
tekið af ibvkarfa.blog.is
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.