Pósturinn minnir landsmenn á síðustu öruggu skiladaga sendinga jólakorta og jólapakka fyrir jólin.
Síðasti öruggi skiladagur til að póstleggja jólapakka til landa utan Evrópu er þriðjudagurinn 4.desember og jólakort til landa utan Evrópu er föstudagurinn 7.desember.
Síðasti öruggi skiladagur á jólapökkum til Evrópu er miðvikudagurinn 12. desember og á jólakortum til Evrópu föstudagurinn 14.desember, til að þau skili sér í tæka tíð.
TNT sendingar til landa utan Evrópu hafa frest til 18.desember en þær TNT sendingar sem fara til Evrópu 19.desember.
Til að vera viss um að jólapakkar og jólakort innanlands skili sér fyrir jól er miðvikudagurinn 19.desember síðasti öruggi skiladagur fyrir jólapakka innanlands og fimmtudagurinn 20. desember síðasti öruggi skiladagur fyrir jólakortin innanlands. Þessar dagsetningar eru mikilvægar til að sendingarnar komist til viðtakenda á réttum tíma í tæka tíð fyrir jólin. Pósturinn tekur alltaf á móti jólapósti en öruggast er að senda jólapakkana og jólakortin fyrir ofangreindar dagsetningar.
Á öllum pósthúsum landsins er tekið á móti jólapóstinum en til að þjónusta landsmenn enn betur mun Pósturinn opna jólapósthús í Kringlunni, Smáralind og á Glerártorgi Akureyri.
Jólapósthúsin í Kringlu og Smáralind opna 7.desember, en á Glerártorgi 14.desember og verða þau opin á afgreiðslutíma verslunarmiðstöðvanna.
Allar nánari upplýsingar um síðustu skiladagana, staðsetningu pósthúsa, opnunartíma og þjónustu Póstsins er að finna á www.postur.is