Gull óx úr lófa mínum

Fyrir rétt um tveimur vikum fóru um 25 Íslendingar á ráðstefnu hjá Toronto Airport Christian Fellowship í Kanada sem er kirkja í borginni Toronto. Í þessum hópi voru mæðginin Árný Heiðarsdóttir og Guðjón Ólafsson sonur hennar.
 
Í samtali www.eyjar.net við Árnýju segir hún okkur frá upplifum sínum og því þegar gull óx úr lófa hennar.
 

Hvað varð til þess að þið fóruð út til Kanada?
“Mikið hefur talað um þá vakningu sem hefur átt sér stað í þessum söfnuði í Kanada að undanförnu. Lindin hefur fjallað um málið og það var þar sem ég heyrði af þessari ráðstefnu. Ég hringdi í Gaua og sagði við hann að við yrðum að skella okkur út og sjá hvað væri í gangi í þessum söfnuði. Þarna voru einhver þúsundir einstaklinga samankomin í stóru íþróttahúsi til að lofa Drottinn og krafturinn var gríðarlegur.”
 
Upplifði kraftaverk og sá stórkostlega hluti gerast
“Í þessari ferð upplifði ég stórkostlega hluti, þarna inni var gríðarlegur lækningarmáttur og andi Drottins var greinilega að vinna í fólkinu þarna. Við fylltumst öll af heilögum anda og ég hef aldrei upplifað annan eins kraft og blessun. Þarna læknaðist m.a. maður sem var með krabbamein í tungunni og haldinn illum anda og fékk hann lækningu á staðnum”
 
Nú segist þú hafa séð gull vaxa úr líkömum fólks og þú sást gull vaxa úr lófa þínum, hvernig gerðist þetta?
“Það kemur til mín ung kona frá Toronto þar sem við erum að dansa og lofa Drottinn og hún sýnir mér hendur sínar og þar sé ég að þær eru þaktar gulli. Ég stoppa og stari á þetta í langan tíma og ætlaði ekki að trúa því sem ég sá. Við þetta lít ég í lófann minn og sé þá að gull er byrjað að vaxa þar, þetta byrjar smátt en verður alltaf meira og á endanum eru báðir lófar mínir þaktir gullryki.
Ég öskraði á Gaua til að sýna honum þetta og hann spurði hvort eitthvað væri að. Þegar hann sér hvað er að gerast þá sjáum við hvar gullið vex úr höndunum hans líka.”
 
Fengu allir í salnum að upplifa svipað og þið með gullið?
“Nei, sumir fengu að upplifa þetta kraftaverk en aðrir ekki en allir sáu þetta gerast. Stundum voru það t.d. annar makinn sem fékk þetta en hinn ekki”
 
Nú tókstu með þér heim sýni til að sanna mál þitt og þú settir það í rannsókn, hvað hefur komið út úr þeim rannsóknum?
“Ég byrjaði á því að fara á gullbúð á laugarveginum og sá fyrsti sagði að þetta væri eins og masínt glimmer og málmur sem er notaður í trompet. Næst fer ég til gullsmiðsins “Jón og Óskar” á laugaveginum og bið þá að athuga fyrir mig hvað þetta gæti verið. Þar var sýnið sett í sýru og ef það er óekta þá bráðnar sýnið eins og skot en það gerði það ekki eftir sýrubaðið.
Þeir sögðu þar að þetta gæti verið pírit steinn eða gull en hvatti mig að fara með þetta í rannsókn til Nýsköpunarmiðstöð Íslands ef ég vildi vita nákvæma niðurstöðu.”
 
Sýni rannsökuð hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands
Hvaða niðurstöður komu úr rannsóknum Nýsköpunarmiðstöðvar?
“Sá sem ég hitti þegar ég kom í Nýsköpunarmiðstöðina tók sýni og setti í smásjá og sagði að þetta væri eins og sex strengjahliða steinar. Ég fæ að skoða þetta og þetta var svo fallegt, þetta var svart og gull í kringum þetta og fjórir steinar fastir saman.
Samkvæmt frumefnagreiningu Nýsköpunarmiðstöðvar eru sýnin samsett úr fjórum frumefnum og hafa þeir ekki séð svona samsetningu áður.”
 
 
Kraftaverk á AGLOW fundi
Nú gerðist það aftur á fundi AGLOW kvenna í Vestmannaeyjum að gullið byrjaði að vaxa í lófa þínum á ný, hvernig gerðist það?
“Ég kem til eyja á þriðjudagskvöldi og fer á AGLOW fund á miðvikudagkvöldi og þar segi ég konunum frá ferð minni til Kanada. Svo í lofgjörðinni gerist það að þetta byrjar aftur að vaxa í höndunum á mér. Og þegar ég lít niður þá er þetta byrjað að sáldrast niður á skóna mína. Og konurnar þarna sáu hvað var að gerast og gátu þær tekið gullið upp úr gólfinu og skoðað. Þetta sannar án alls vafa að Guð er til”.

 

Nýjustu fréttir

Sandra náði áfanga með íslenska landsliðinu
Með fullfermi eftir örstutta túra
Friðrik Dór mætir á Þjóðhátíð
Vestmannaeyjar í gegnum linsu liðins tíma
40 ára aldursmunur á vinningshöfum
Hvert viljum við stefna?
Margrét Rós: „Ég er hvorki í fýlu né lít á mig sem tapara“
Slá ekki slöku við

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.