Eigendur rúmlega þriðjungs hlutafjár í Vinnslustöðinni í Vestmannaeyjum krefjast þess að hluthafafundur verði haldinn hið fyrsta og að ný stjórn verði kosin. Í síðustu viku samþykkti hluthafafundur að afskrá Vinnslustöðina í Kauphöllinni.
Það er óhætt að segja að það hafi ríkt hálfgert stríðsástand í Eyjum í vor þegar Stilla, félag í eigu Guðmundar Kristjánssonar í Brimi og bróður hans Hjálmars Kristjánssonar, gerði yfirtökutilboð í félagið og bauðst til að kaupa á genginu 8,5. Áður höfðu Eyjamenn ehf. gert yfirtökutilboð á genginu 4,6.
Eyjamenn ráða yfir rétt rúmlega helmingi hlutabréfa. Ekkert varð úr yfirtöku því enginn var tilbúinn að kaupa af Stillu m.a. vegna ótta við að Guðmundur í Brimi hygðist fara með kvóta burt frá Eyjum. Vinnslustöðin ræður yfir um þriðjungi af kvóta Vestmannaeyja.
Til að gera langa sögu stutta dró til tíðinda í síðustu viku þegar meirihluti hluthafafundar, um 60%, samþykkti að afskrá félagið í Kauphöllinni. Stilla sem ræður yfir þriðjungshlut leggst eindregið gegn því að félagið verði afskráð.
Samkvæmt heimildum fréttastofu Útvarps hefur Stilla nú krafist þess að boðað verði til nýs hluthafafundar og að ný stjórn verði kosin. Stillumenn óttast að með afskráningu verði hlutur þeirra gerður verðlaus. Eyjamenn hafa lofað því eftir afskráningu að kaupa hluti einhverra hluthafa en Stillumenn telja að þeir séu ekki meðal þeirra.
Stilla telur beinlínis að stjórnendur Vinnslustöðvarinnar sem tengjast Eyjamönnum ehf., og ráða yfir helmingi hlutafjár, hafi beitt félaginu í sína eigin þágu. Það hafi þeir m.a. gert með samningum við VÍS og Kaupþing.
Stilla vill fá skýr svör á hluthafafundinum um viðskipti þeirra við þessi félög. Þeir telja líka að samið hafi verið við einhverja starfsmenn um umboðslaun eða þóknun vegna sölu á afurðum. Á hluthafafundinum verði upplýst um umfang þessara greiðslna og um hve háar upphæðir sé að ræða. Farið er fram að fundurinn verði haldinn innan tveggja vikna.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.