Já ég hrósaði bæjarstjórninni okkar hér í greininni á undan og stend við hvert orð sem ég sagði. Mér finnst þetta gott fólk sem stjórnar bænum og ástandið hér er gott.
Ég var að tala við Magga Sig framkvæmdastjóra Stiena og Olla byggingaverktaka og hann brosti hringinn “Aðal-vandamálið er að okkur vantar fleiri starfsmenn” sagði hann.
Hinn fjallmyndarlegi bæjarstjóri okkar var áberandi þegar hann tók við. Sterkur og bjartsýnn leiðtogi sem lét mikið á sér og okkur bera. Hann var í öllum fréttatímum og var duglegur við að auglýsa okkur á jákvæðan hátt. Hann var líka nálægur og það sem hann gerði sem mér finnst flott hjá mönnum í hans stöðu var að hann bloggaði. Setti fram sína skoðun á málum og upplýsti almenning um hin ýmsu mál sem voru á baugi. Menn gátu þá líka svarað og sett fram sína skoðun við hann.
En þegar maður fer inn á bloggið hans í dag er nýjasta færslan; Jarðgöng til Eyja slegin af. “come on Elliði, keep on!!
Magnús Bragason bloggar á www.maggibraga.blog.is
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.