Í bann fyrir að vera giftur
ASCII
ASCII

Hermann Hreiðarsson, fyrirliði og vinstri bakvörður íslenska landsliðsins, verður í banni í næsta landsleik, á móti Lettum á Laugardalsvelli laugardaginn 13. október.

Hermann fékk gult spjald þegar hann hugðist taka innkast út við hliðarlínu skammt frá hornfánanum vinstra megin. Fáir skildu hvers vegna dómarinn sýndi honum gula spjaldið enda virtist ekkert vera um að vera nema hvað hann bjó sig undir að taka innkastið.

„Ég fékk spjaldið fyrir að vera með giftingarhringinn á mér og nú verð ég í banni í næsta leik fyrir að vera giftur,” sagði Hermann eftir leikinn, en hann fékk gula spjaldið á 65. mínútu leiksins.

Nýjustu fréttir

Dumbungur skyggði á sólmyrkvann í Eyjum
Fyrsta sýning Oddnýjar á heimaslóðum
Nú reynir á hvort birtir til eða ekki
Ríkið unir niðurstöðunni
Rannsóknarholan komin niður á 180 metra
Eyjamenn gera sig klára fyrir Reykjavíkurmaraþonið
Almyrkvinn blásinn af á Helgafelli – „Kannski verður blíða árið 2196
Vonast eftir glennu þegar sólmyrkvinn verður í hámarki
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.