Helstu verkefni lögreglu frá 20 ágúst til 27. ágúst 2007

Það er helst að frétta hjá lögreglu eftir sl. viku að þessi hrina skemmdarverka sem fór af stað um helgina 18-19. ágúst sl. hélt eitthvað áfram fram eftir viku því tvö önnur eignaspjöll voru tilkynnt til lögreglu í byrjun síðustu viku. Er þarna um að ræða rúðubrot í bifreið sem stóð við verkstæði Bílverks v/Flatir.  Þá var tilkynnt um rúðubrot í Miðstöðinni.  Er talið að þessar tvær rúður hafi verið brotnar að kvöldi 21. ágúst sl.  Þar sem ekki liggur fyrir hver eða hverjir þarna voru að verki hvetur lögreglan þá sem einhverjar upplýsingar hafa um gerendur að hafa samband.

Þrír þjófnaðir voru tilkynntir lögreglu í sl. viku en um er að ræða þjófnað á útvarpi úr bifreið sem stóð á Skólavegi, þjófnað á eldsneytiskortum úr stýrishúsi Frú Matthildar VE og þjófnað á tösku sem var í búningsklefa í Íþróttamiðstöðinni.  Ekki liggja fyrir hverjir þarna voru að verki og óskar lögreglan eftir því að þeir sem einhverja vitneskju hafa um þá sem þarna áttu hlut að máli hafi, samband við lögreglu.

Einn fékk að gista fangageymslu lögreglu eftir skemmtanahald helgarinnar en sökum ölvunar var hann óviðræðuhæfur og fékk því gistingu á lögreglustöðinni þar til víman rann af honum.

Þrír ökumenn fengu sekt vegna brota á umferðarlögum. Einn ökumaður fékk sekt fyrir að skilja bifreið sína eftir þannig að hún rann á aðra,  þá var einn ökumaður sektaður fyrir að hafa ekki öryggisbeltið spennt í akstir og einn fyrir að leggja bifreið sinni ólöglega.

Lögreglan vill minna foreldra og forráðamenn barna yngri en 16 ára á að nk. laugardag þann 1. september breytast útivistareglur barna og ungmenna þannig að börn 12 ára og yngri, mega ekki vera á almannafæri eftir kl. 20:00 nema í fylgd með fullorðnum. Börn á aldrinum 13 til 16 ára skulu ekki vera á almannafæri eftir kl. 22:00, enda séu þau ekki á heimferð frá viðurkenndri skóla-, íþrótta- eða æskulýðssamkomu. Aldursmörk miðast við fæðingarár en ekki fæðingardag.

Nýjustu fréttir

Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Dýptarmælingar fyrirhugaðar í Landeyjahöfn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.