Frá því að Kauphöll Íslands (OMX opnaði í morgun hafa hlutabréf í FL Group fallið töluvert eða um 2.94% frá opnun. Gengi hlutabréfa FL Group hefur ekki verið lægra í marga mánuði eða síðan í september á síðasta ári.
Fjárfestingar FL Group hafa margar hverjar undanfarið skilað tapi og t.d. hefur fjárfesting félagsins í Royal Unibrew í Danmörku fallið um 15% síðustu daga. Fl Group á 25.% hlut í þessu brugghúsi. Einnig hefur verið tap á fjárfestingum FL Group í AMR.
Nýverið var kynnt tap upp á 27.1 milljarð króna á fyrsta ársfjórðungi en á síðasta ári var 11 milljarða hagnaður á sama tíma.
Fjárfestirinn Magnús Kristinsson á stóran hlut í FL Group í gegnum fjárfestingafélagið Gnúp sem er í eigu Magnúsar, Kristins Björnssonar og Þórðar Más fyrrverandi forstjóra Straums. Gnúpur er skráð fyrir um 17% hlut í FL Group.
Guðbjörg Mattíasdóttir á einnig um 2.05% hlut í FL Group.