Forráðamenn Stillu útgerðar hf., Línuskipa ehf. og KG fiskverkunar ehf., eigendur um þriðjungs hlutafjár í Vinnslustöðinni hf., hafa sent stjórnarformanni Vinnslustöðvarinnar beiðni um hluthafafund í félaginu til að fjalla um tiltekin málefni þess. Meðal annars er óskað eftir rannsókn á viðskiptum félagsins og einstakra stjórnenda, samningum við fyrirtæki og viðskiptabanka.
Umrætt erindi var boðsent stjórnarformanni Vinnslustöðvarinnar seint í gærkvöld og stjórninni hefur ekki gefist ráðrúm til að fjalla um það. Aðstandendur erindisins kusu engu að síður að koma boðskap sínum á framfæri við fjölmiðla þegar í stað og reyndar höfðu ekki allir stjórnarmenn VSV fengið bréfið í hendur þegar um það var fjallað í Útvarpsfréttum í kvöld. Augljóst er að aðstandendur erindisins birta það á þennan hátt í þeim tilgangi að gera stjórnendur og meirihlutaeigendur Vinnslustöðvarinnar tortryggilega með tilhæfulausum dylgjum sem felast bréfinu til stjórnar félagsins. Þeim aðdróttunum vísum við af gefnu tilefni til föðurhúsa.
Stjórn Vinnslustöðvarinnar mun að sjálfsögðu taka umrætt erindi fyrir og því verður síðan svarað á réttum vettvangi.