Skátafélagið Fossbúar sér um hátíðardagskrá í tilefni sumardagsins fyrsta á Selfossi í dag. Skrúðganga verður frá Vallaskóla – Sandvík og hefst hún klukkan 10:30. Gengið verður eftir Bankavegi, Sólvöllum, Reynivöllum, Austurvegi, Eyravegi og Kirkjuvegi að Selfosskirkju. Skáta og Lúðrasveit Selfoss ganga fyrir skrúðgöngunni.