Handaflsagðgerðir ráðherra kosta Eyjamenn 8.000 tonn af makríl
Bæjarstjórn Vestmannaeyja samþykkti í dag, með sex atkvæðum af sjö, harðorða ályktun þar sem nýrri reglugerð vegna makrílveiða er mótmælt. „Bæjarstjórn Vestmannaeyja lýsir yfir andstöðu við þau vinnubrögð sem voru viðhöfð í aðdraganda nýrrar reglugerðar sjávarútvegsráðherra um veiðar á makríl. Fyrir liggur að ef ekki hefði komið til breytinga á úthlutunarreglum hefðu útgerðir í Vestmannaeyjum fengið úthlutuðum 48.927 tonnum. Handaflsaðgerðir ráðherra verða hinsvegar til þess að þessum tonnum fækkar um 7896. Höggið sem er í anda fyrningaleiðar er mikið fyrir samfélagið í Eyjum. Þannig eru tapaðar tekjur samfélagsins um 1250 milljónir. Þar af eru tapaðar launatekjur sjómanna um 133 milljónir og tapaðar tekjur landverkafólks um 71 milljón.“

Nýjustu fréttir

Sjómannskonur: Guðbjörg Erla
Vel heppnuð fimleikasýning
Brot af því besta úr viðtölum Stjána á Emmunni
Dagur hlaut háttvísisverðlaun HDSÍ
Krakkarnir á Víkinni fögnuðu útskrift
Sjómennska, Surtsey og sveitarstjórn í nýjum Eyjafréttum
Vorsýning fimleikafélagsins í dag
Sandra besti sóknarmaður Olís deildar kvenna
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.