ÍBV leikur gegn Stjörnunni í íþróttahúsinu Mýrinni í Garðabæ föstudagskvöld kl.19:30. Þar sem ekki má treysta á flug í síðustu tveimur umferðunum ákvað Arnar Pétursson að liðið færi í dag fimmtudag með Herjólfi. Þeir gista því tvær nætur í Reykjavík og koma heim á laugardag.