Söngkonan Selma Björnsson ætlaði að halda tónleika í kvöld á skemmtistaðnum Volcano Cafe. Hins vegar neyðist hún til að fresta tónleikunum um óákveðin tíma þar sem að í Eyjum er svarta þoka og ekki flugfært. Hins vegar mun framherjahrellirinn Elías Fannar Stefnisson halda uppi stuðinu á staðnum í kvöld af sinni alkunnu snilld.