Í kvöld fór fram úrslitaleikur í Meistaramóti Kiwanisklúbbsins Helgafells í snóker. Þar mættust Magnús Kristleifur Magnússon og Guðmundur Jóhannsson. Báðir eru þeir meðal bestu snókerspilara klúbbsins og því búist við spennandi leik. En Magnús Kristleifur var á öðru máli og kláraði leikinn 3:0 en vinna þurfti þrjá ramma til að vinna leikinn. Með fréttinni fylgir stutt myndband með tilþrifum þeirra félaga.