Í Fréttablaðinu í dag er greint frá því á forsíðu blaðsins að fjöldi skráðra glæpa, miðað við íbúatölu, hafi verið mestur í Vestmannaeyjum á síðasta ári. Þjóðhátíð skýri að einhverju leyti þessa niðurstöðu en Karl Gauti Hjaltason segir hátíðina ekki skýra stöðuna að öllu leyti. Lögreglan í Vestmannaeyjum hefur sinnt flestum líkamsárásarmálum, fíkniefnabrotum, áfengislagabrotum og brotum gegn valdstjórninni en sama staða var árið 2009, flest brotin voru framin í Eyjum.