Á heimasíðu ÍBV er sagt frá þeim félögum Tonny Mawejje og Abel Dhaira en þeir hafa verið að leika með úganska landsliðinu í CECAFA keppninni í Afríku. Þar leika þjóðir frá mið- og austur-Afríku en Úganda sigraði Rúanda í úrslitaleik 3:2. Abel gerði sér lítið fyrir og varði tvær vítaspyrnur í leiknum.