Aðalfundur Sparisjóðs Vestmannaeyja fór fram í gær í húsakynnum sjóðsins. Elliði Vignisson, bæjarstjóri sat fundinn fyrir hönd Vestmannaeyjabæjar, sem komst í hóp stofnfjáreigenda skömmu áður en ríkið eignaðist 55% hlut í sjóðnum. Samkvæmt heimildum Eyjafrétta voru umræður nokkuð líflegar en Elliði segir að fundurinn hafi verið góður og málefnalegur.