Ferð Herjólfs, sem áætluð var 14:30 frá Eyjum og 16:00 frá Landeyjahöfn, hefur verið felld niður. Athugun fyrir næstu ferð verður klukkan 16:00 en áætlað er að Herjólfur sigli 17:00 frá Eyjum. Klukkan 13:00 var meðalvindhraði á Stórhöfða 31 metrar á sekúndu en sló upp í 40 metra í mestu hviðunum.